Fyrsta Alicante-flug Úrval-Útsýn og VITA er fullbókað.
Uppselt er hjá Úrval-Útsýn og VITA í fyrsta flug ferðaskrifstofanna til Alicante, á Spáni, mánudaginn 13. júlí. „Fyrstu tvær ferðirnar til Alicante eru uppseldar og fyrstu brottfarir til Tenerife eru vel bókaðar þannig að við erum bjartsýn á að við séum að ná að keyra sumarið vel í gang,” segir Þráinn Vigfússon, framkvæmdastjóri VITA, í samstali við turisti.is.
Þar er jafnframt rætt við Þórunni Reynisdóttur, forstjóra Úrval-Útsýn, sem segir að enn séu nokkur sæti laus í ferðina til Alicante þann 20. júlí. Hjá VITA eru engin sæti laus þann dag.
Þráinn segist ekki hafa orðið mikið var við að það hafi áhrif á sölu flugmiða að Íslendingar komi til með að verða skyldaðir í nokkurra daga sóttkví við komuna til landsins, frá og með næstu viku. Hann segir engar afbókanir hafi borist VITA vegna þessa.