Niðurstaða rannsóknar Embættis landlæknis á andláti aldraðs manns, sem slasaðist á hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Hvolsvelli, er sú að ekki sé hægt að segja til um hvort maðurin hafi látist af völdum áverka sem hann hlaut í slysinu, eða vegna annara undirliggjandi þátta. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag.
Maðurinn, sem var á tíræðisaldri lést um miðjan janúar á Kirkjuhvoli, á hjúkrunar- og dvalarheimili aldraðra á Hvolsvelli. Talið er að maðurinn, sem var einsamall í herbergi sínu, hafi ætlað að reisa sig á fætur en við það hafi fataskápur fallið á hann með þeim afleiðingum að hann slasaðist. Skápurinn var á hjólum og ekki tryggður með festingum.
Í samtali við Fréttablaðið segir Sólveig Unnur Eysteinsdóttir, deildarstjóri á Kirkjuhvoli og staðgengill hjúkrunarforstjóra, að í kjölfar slyssins hafi verið brugðist við á Kirkjuhvoli með því að festa kyrfilega húsgögn og tryggja öryggi. Þá segir Kjartan Hreinn Njálsson, aðstoðarmaður landlæknis, að embættið ætli að benda öðrum hjúkrunarheimilum á að gera ráðstafanir svo sambærilegt atvik eigi sér ekki aftur stað.
Aðspurð segist Sólveig ekki vita hvort krafa um skaðabætur hafi borist frá aðstandendum sjúklingsins.