Heimildamyndahátíðin Icelandic Documentary Film Festival hefst á Akranesi í kvöld, miðvikudaginn 15. júlí, og stendur fram á sunnudag. Fjölbreytt úrval mynda og viðburða verða í boði.
Yfir 20 heimildamyndir af öllu tagi verða sýndar á heimildamyndahátíðinni Icelandic Documentary Film Festival sem hefst á Akranesi í kvöld. Myndirnar, sem eru hvaðanæfa að úr heiminum og fjölbreyttar eftir því, eru alveg frá tólf mínútum upp í 106 mínútur að lengd.
Auk bíósýninga verða margvíslegir viðburðir í boði, þar á meðal vinnustofur fyrir börn og ungmenni, tónlistaratriði, karnival stemming og heilsuefling á morgnanna, svo sem fjallgöngur, bæjargöngu, hugleiðsla, jóga og fleira.
Icelandic Documentary Film Festival er opin öllum og er frítt á flesta viðburði, en vegna samkomutakmarkana þarf að bóka miða á viðburði fyrirfram í gegnum www.icedocs.is.
Þeir sem komast ekki eða ná ekki að sjá allar myndirnar geta fengið passa á vefsíðunni sem hægt er að nýta til að horfa á myndirnar á Netinu í þrjár vikur eftir að hátíðinni lýkur.