Miðvikudagur 20. nóvember, 2024
-5.1 C
Reykjavik

Icelandair slítur viðræðum við FFÍ og segir upp flugfreyjum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Icelandair hefur lokið kjaraviðræðum við Flugfreyjufélag Íslands án árangurs. Icelandair sér sig knúið til að segja upp þeim flugfreyjum og flugþjónum sem starfa hjá félaginu og ætlar að hefja viðræður við annan samningsaðila á hinum íslenska vinnumarkaði, um framtíðarkjör öryggis- og þjónustuliða hjá félaginu.

„Við höfum lagt allt kapp á að ná samningum við Flugfreyjufélag Íslands og lagt í þeim tilgangi fram fjölmörg tilboð sem öllum hefur verið hafnað. Með þeim kjarasamningi sem felldur var af meðlimum FFÍ gengum við eins langt og mögulegt var til að koma til móts við samninganefnd FFÍ. Sá samningur hefði tryggt ein bestu kjör fyrir störf flugfreyja og flugþjóna sem þekkjast á alþjóðamarkaði,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

„Tíminn er á þrotum og við neyðumst til að leita annarra leiða. Þessi ákvörðun er mér afar þungbær en nauðsynleg þar sem ljóst er að samtalið milli félaganna tveggja fer ekki lengra.“

„Tíminn er á þrotum og við neyðumst til að leita annarra leiða.“

Þetta er kemur fram í tilkynningu frá Icelandair sem félagið sendi á Kauphöll Íslands. „Eins og fram hefur komið er samkomulag við helstu hagaðila Icelandair Group, svo sem lánveitendur, flugvélaleigusala, stjórnvöld, birgja og stéttarfélög mikilvægur liður í fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins sem unnið hefur verið að á undanförnum vikum,“ segir þar. „Í kjölfarið stefnir félagið að hlutafjárútboði sem er forsenda þess að koma félaginu í gegnum þær krefjandi aðstæður sem nú ríkja sem og að styrkja rekstrargrundvöll og samkeppnishæfni félagsins til framtíðar.

Nýir kjarasamningar við flugmenn og flugvirkja hafa nú þegar verið samþykktir en viðræður Icelandair og Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) hafa hins vegar ekki skilað árangri. Það er mat félagsins að ekki verði lengra komist í viðræðum við Flugfreyjufélag Íslands og hefur þeim því verið slitið. Icelandair sér sig jafnframt knúið til að segja upp þeim flugfreyjum og flugþjónum sem starfa hjá félaginu. Flugmenn félagsins munu frá og með mánudeginum 20. júlí starfa tímabundið sem öryggisliðar um borð. Þjónustustig um borð í vélum Icelandair mun áfram taka mið af þeim ráðstöfunum sem gerðar hafa verið vegna COVID-19 og verður því í lágmarki.“

Kveðst félagið gera ráð fyrir að hefja viðræður við annan samningsaðila á hinum íslenska vinnumarkaði, um framtíðarkjör öryggis- og þjónustuliða hjá félaginu.

- Auglýsing -

„Það hvílir mikil ábyrgð á okkur sem stjórnum félaginu að tryggja rekstur þess til framtíðar og því miður sjáum við ekki annan kost í stöðunni en að fara þessa leið,“ segir Bogi. „Það er sárt að vera í þessari stöðu gagnvart afburðasamstarfsfólki sem hefur staðið vaktina með félaginu til fjölda ára, svo eftir hefur verið tekið.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -