- Auglýsing -
Alls greindust 259.848 manns með kórónaveiruna á einum sólarhringi.
Smitum á heimsvísu hefur aldrei fjölgað jafn mikið og þarsíðasta sólarhring. Aukningin varð mest í Bandaríkjunum, Brasilíu, Suður-Afríku og á Indlandi.
Þetta er samkvæmt gögnum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO. Þar kemur jafnframt fram að 7.360 manns hafi látist af völdum veirunnar, en COVID-19 hefur ekki dregið fleiri til dauða á einum sólarhring, frá því 10. maí.