- Auglýsing -
Bókin Scandinavia Dreaming gerir skandinavískri hönnun sérlega góð skil. Í bókinni er fjallað um þá nálgun sem góð og tímalaus hönnun felur í sér.
Langur birtutími að sumri og stuttur að vetri hefur mikil áhrif á skandinavískan arkitektúr og hönnun jafnt sem lita- og efnisval og er það tekið fyrir í bókinni. Hvert Norðurland hefur sína sérstöðu varðandi hönnun og eru því einnig gerð góð skil í texta og myndum. Myndirnar eru vandaðar og veita lesendum góðan innblástur. Umbrotið er fágað sem fellur vel að innihaldi bókarinnar. Bókin er gefin út af Gestalten og fæst á Amazon.