Nokkur fíkniefnamál komu á borð lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær.
Lögregla þurfti í gær að hafa afskipti af manni sem gekk um miðbæ Reykjavíkur með spýtu á lofti. Var maðurinn undir miklu áhrifum fíkniefna. Lögreglu barst önnur tilkynning vegna manns í miðbænum og var sá að sprauta sig með fíkniefnum að því er fram kemur í dagbók lögreglu.
Var lögregla einnig kölluð út vegna manns í annarlegu ástandi í fjölbýlishúsi í Grafarvogi. Hélt hann vöku fyrir íbúum hússins og var því færður í fangageymslu. Loks stöðvaði lögregla tvo ökumenn sem voru undir áhrifum fíknefna og voru þeir báðir sviptir ökuréttindum.