- Auglýsing -
Hljómsveitin Winter Leaves var að gefa út tónlistarmyndband við lagið Second Chanses, sem var á plötunni Higher sem kom út árið 2019. Sveitin vann myndbandið sjálf og tók það allt upp á Suðurlandi. Óhætt er að segja að sveitin sé iðin við kolann, en hún er þessa dagana í hljóðveri að taka upp nýtt lag sem kemur út í haust. Hægt er að sjá myndbandið á Albumm.is.