Þann 12. júlí næstkomandi ætlar hin unga og upprennandi tónlistarkona og útsetjari KÍTA að senda frá sér sína fyrstu smáskífu, Things You Don’t Know.
Í tónlistarsköpun sinni hefur KÍTA lagt áherslu á poppaða raftónlist og er þessi smáskífa engin undantekning; hún inniheldur meðal annars hljóðgervla í anda níunda áratugar síðustu aldar og þykir þar af leiðandi vera skemmtilegt sambland af nútímatónlist og eighties-poppi. Tónlistarmyndband við lagið er þegar komið út og hefur hlotið góðar viðtökur.
Því var leikstýrt af Angie Diamantopoulou en aðstoðarleikstjórn var í höndum Ásu Maríu. Angie, Ása María, KÍTA og Arnór Trausti framleiða en Arnór stýrði jafnfram upptökum og klippti myndbandið og sá Ása María um hár og förðum.