Rithöfundarnir Irvine Welsh, höfundur Trainspotting, og Bret Easton Ellis, höfundur American Psycho, eru nú í samningaviðræðum við Burning Wheel Productions um að skrifa í sameiningu handrit að sjónvarpsþáttaröð um bandaríska slúðurfjölmiðla og skoða í leiðinni þau siðlausu og ófaglegu vinnubrögð sem slíkir miðlar stunda. Vinnuheitið er American Tabloid og sagan segir nokkurra áratuga sögu slúðurblaðs, sem tekur pólitíska rétthugsun ekki hátíðlega, samkvæmt frétt á dazeddigital.com.
Talskona framleiðslufyrirtækisins Burning Wheel, Shelley Hammond, segir það hafa verið markmiðið að ráða handritshöfunda sem ekki væru hræddir við að ganga fram af fólki og bætir við „Við erum himinlifandi að hafa fengið Irvine og Bret til liðs við okkur. Þetta er í fyrsta sinn sem þeir vinna saman og þar sem þeir munu fá algjörlega frjálsar hendur við skrifin erum við sannfærð um að útkoman verður stórkostleg.“