- Auglýsing -
Nýjasta vörulínan frá Sebra Interior kallast Oakee og samanstendur af þremur húsgögnum.
Danska vörumerkið Sebra Interior er þekkt fyrir sérlega vandaðar og stílhreinar vörur fyrir börn. Nú er komin ný vörulína á markað sem ber nafnið Oakee. Línan samanstendur af þremur húsgögnum; borði, stól og bekk.
Þarna tekst fyrirtækinu með áreynslulausum hætti að búa til hluti sem eru praktískir og smart á sama tíma, eins og þess er von og vísa. Húsgögnunum má koma fyrir hvar sem er á heimilinu og passa einkar vel innan um aðra skandinavíska hönnun.