Parið sem kallaði eftir aðstoð á Hornströndum í gærkvöldi er fundið.
Parið sem leitað var að á Hornströndum í nótt fannst heilt á húfi í Hlöðuvík rétt fyrir klukkan átta í morgun. Fólkið var komið inn í tjald.
Parsins hafði verið leitað síðan það óskaði eftir aðstoð á tólfta tímanum í gærkvöldi. Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sagði í samtali við Fréttablaðið fyrr í morgun að talið væri að parið væri statt einhvers staðar í Þorleifsskarði, á milli Fljótavíkur og Hlöðuvíkur, en ekki hafði náðist aftur í það og hamlaði svartaþoka leitina töluvert. Þokan varð til þess að fólkið lenti í vanda og átti erfitt með að láta vita af sér.
Í samtali við RÚV segir Davíð Már nú að fólkið hafi fundist heilt á húfi, eins og áður segir, og var það ágætlega búið með nóg nesti.