Félagsmenn í Flugfreyjufélagi Íslands hafa samþykkt kjarasamning milli félagsins og Samtaka atvinnulífsins vegna Icelandair.
„Stjórn og samninganefnd FFÍ fagna því að viðræðum sé lokið og þakkar félagsmönnum fyrir samstöðu og stuðning sem ríkt hefur meðal hópsins síðustu mánuði,“ segir í tilkynningu sem Flugfreyjufélag Íslands hefur sent frá sér, í ljósi þess að félagsmenn í félaginu hafa samþykkt kjarasamning við Icelandair.
Nálægt níutíu prósent félagsmanna greiddu atkvæði rafrænt. Alls sögðu 83,5 prósent já en 13,42 prósent sögðu nei. Voru þrjú prósent kjörseðla auðir. „Kjörsókn var mjög góð og sýnir það ábyrgð og áhuga félagsmanna á starfskjörum sínum og vinnuumhverfi,“ segir í tilkynningunni.
Samningurinn var kynntur fyrir félagsmönnum fyrir viku á Hótel Nordica á Suðurlandsbraut. Með þessu er viðræðum lokið og nýr kjarasamningur hefur tekið gildi.