- Auglýsing -
Staðgengils sóttvarnalæknis segir koma til greina að herða sóttvarnareglur vegna COVID-19 smita frá mismunandi uppsprettum undanfarið.
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, segir að til umræðu sé að ráðast í hertar aðgerðir innanlands, og mögulega á landamærunum, í ljósi þeirra COVID-19 smita sem hafa verið að greinast undanfarið. Þetta kom fram á upplýsingafundi Almannavarna í dag.
Alls eru 24 manns í einangrun vegna COVID-19 á landinu. Fjórtán innanlandssmit hafa ennfremur greinst.