ORÐRÓMUR Ráðning Andrésar Magnússonar, fjölmiðlarýnis Viðskipablaðsins, í starf fulltrúa ritstjóra Morgunblaðsins vekur nokkra athygli, aðallega í fjölmiðlaheiminum.
Ýmsar kenningar eru uppi um ástæður þess að Andrés er settur við fótskör Davíðs Oddssonar og Haraldar Johannesen. Árvakur, útgáfa Morgunblaðsins, hefur tapað himinháum upphæðum undanfarin ár. Tapið er ekki aðeins vegna blaðsins heldur er haldið úti dýrri og atkvæðalítilli útvarpsstöð, K 100. Óvíst er um úthald eða vilja bakhjarla Árvakurs til að standa undir endalausu tapi til lengdar.
Kenningin er sú að blóðugur niðurskurður standi fyrir dyrum og Davíð muni setjast í löngu tímabæran helgan stein. Haraldur mun þurfa að taka ábyrgð á rekstrinum og hverfa líka. Þá verður komið að Andrési að taka við keflinu og reyna að bjarga skútunni …