70 mál voru bókuð í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á næturvaktinni.
Þrjár líkamsárásir voru tilkynntar. Tvær áttu sér stað við skemmtistaði og ein við verslun í austurborginni. Þolendur hlutu andlits -og höfuðáverka. Tveir voru fluttir með sjúkrabíl á bráðamóttökuna í Fossvogi. Gerendur voru farnir af vettvangi.
Tíu mál voru vegna kvartana yfir hávaða og ónæði. Fimm voru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis/fíknefna. Einnig bárust 10 mál vegna kvartana yfir hávaða og ónæði.
Tveir voru vistaðir í fangageymslu vegna annarra mála.
Einnig voru nokkur önnur mál vegna slagsmála og óláta en þau voru yfirstaðin er lögregla kom á staðinn og líklega verða ekki eftirmál.