72 mál voru bókuð hjá lögreglunni á tímabilinu 17:00 í gær til klukkan 05:00 í nótt. Þrír voru vistaðir í fangageymslu.
Í nótt hafði lögregla afskipti af ökumanni sem grunaður var um akstur undir áhrifum, sá virti ekki stöðvunarmerki lögreglu. „Er lögregla kom auga á bifreiðina varð stutt eftirför þar sem ökumaður sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Í botnlanga götu hlupu karl og kona úr bifreiðinni en voru síðan handtekin skömmu síðar. Kom í ljós að bifreiðin var stolin og ökumaður vímaður,“ segir í dagbókarfærslu lögreglu um verkefnu næturinnar.
Þá var innbrot í ljósmyndavöruverslun í austurborginni tilkynnt, þar var fjölda myndavéla stolið. Tveir grímuklæddir menn voru að verki og er málið er í rannsókn.