- Auglýsing -
Á morgun kl. 15 opnar í Ásmundarsal jólasýningin Ég hlakka svo til sem er samsýning 150 listamanna en Prent & vinir sjá um sýningastjórn. Sýningin er sölusýning og með henni er verið að endurvekja gamla hefð. Á fimmta áratug síðustu aldar tíðkaðist að halda slíkar sölusýningar í Listvinasalnum en þar sýndu þjóðþekktir listamenn verk sín ásamt yngri og lítt þekktari listamönnum.
Í ár verða um 500 listaverk til sýnis og því tilvalið að nýta tækifærið og versla jólagjafir. Hægt verður að pakka verkunum inn í silkiþrykktan pappír á staðnum en Prent & vinir verða með innpökkunarstöð á sýningunni. Í Gryfjunni verður einnig sett upp grafíkverkstæði þar sem valdir listamenn verða fengnir til að vinna verk í upplagi á hverjum degi yfir sýningartímabilið.