- Auglýsing -
Lögreglan á Suðurlandi tilkynnti á Facebook-síðu sinni í nótt að karlmaður á fimmtugsaldri hafi látist í slysi á þjóðvegi 1, skammt vestan Stigár í Austur-Skaftafellssýslu.
Samkvæmt lögreglu var maðurinn á bifhjóli en talið er að hann hafi misst stjórn á hjólinu. Í tilkynningu segir:
„Tildrög slyssins eru til rannsóknar en maðurinn virðist hafa fallið og runnið eftir götunni í veg fyrir bifreið sem kom úr gagnstæðri átt. Endurlífgunartilraunir á vettvangi báru ekki árangur og var hann úrskurðaður látinn þar.“