Nemendur Kvennaskólans í Reykjavík fá kennslu í skólanum þriðju hverju viku í vetur. Hinar vikurnar verðar nemendurnir í fjarnámi. Skólastarfið hefst þar í fyrrmálið þar sem nýnemar skólans mæta til leiks.
Vegna Covid-19 og sóttvarnsreglna verður starfsemi skólans með breyttu sniði þennan skólaveturinn. Bekkir skólans munu hafa sína kennslustofu til umráða í stað þess að flakka á milli stofa eftir námsgreinum. Kennarar ólíkra greina munu þess í stað koma í stofur viðkomandi bekkja.
Þetta kemur fram í tilkynningu sem nýnemum var send og þar er það harmað að mötuneytið verði ekki opið og nemendur því hvattir til þess að koma með nesti með sér. Borðum í skólastofum verður stillt upp með eins metra millibili og nemendur beðnir um að færa þau ekki til.
Til að forðast draga sem best úr hættunni á smitum og koma í veg fyrir að allur skólinn þurfti að fara í sóttkví komi upp smit hafa stjórnendur Kvennó ákveðið að aðeins verði einn árgangur í einu í skólanum. Það þýðir að hver árgangur fær staðnám á þriggja vikna fresti í vetur, að því gefnu að reglur um sóttvarnir haldist óbreyttar.