- Auglýsing -
Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi við Stigá síðastliðinn laugardag hét Stefán Hafstein Gunnarsson til heimilis að Hamraborg 32 í Kópavogi. Hann var fæddur 9. mars 1973. Stefán lætur eftir sig eiginkonu og tvo uppkomna syni. Þetta tilkynnti lögreglan rétt í þessu.