Hálsmenið sem Michelle Obama skartaði í gær hefur vakið mikla athygli.
Ávarpið sem Michelle Obama, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, flutti á landsfundi Demókrataflokksins í gær hefur vakið athygli. Í ávarpinu, sem var streymt á Netið, sagði Obama að Donald Trump væri rangur forseta fyrir Bandarísku þjóðina og að vont gæti versnað ef þjóðin mun ekki knýja fram breytingar í næstu forsetakosningum.
En það voru ekki aðeins skilaboð Obama sem vöktu athygli heldur líka hálsmenið sem hún bar. Um fíngert gullhálsmen með skilaboðunum „vote“, á íslensku „kjóstu“, er að ræða.
Samkvæmt tölum Google Trends fóru netverjar á flug og flettu margir upp leitarorðnum „vote necklace“, „Michelle Obama necklace“ og „letter necklace“ eftir að Obama hafði lokið við ræðu sína.
“Michelle Obama necklace,” “vote necklace” and “letter necklace” are breakout searches, past hour, US –
The necklace is the top trending search on all of US Google in the last hour of the event.https://t.co/I0WiP7r7bt
— GoogleTrends (@GoogleTrends) August 18, 2020
Fjölmargir notendur Twitter óskuðu þá eftir upplýsingunum á miðlinum um hvar væri hægt að kaupa samskonar hálsmen.
Það er bandaríski skartgripahönnuðurinn ByChari sem á heiðurinn að hálsmeni Obama. Hálsmenið kostar 280 pund sem gerir rúmar 50 þúsund krónur miðað við núverandi gengi.
Stílisti Obama hafði samband við ByChari fyrir nokkrum vikum. Hún segir í samtali við Daily Beast að hún hafi ekki vitað hvenær Obama ætlaði að nota hálsmenið. „Ég ætlaði ekki að trúa þessu,“ segir hún um augnablikið þegar hún sá Obama með hálsmenið í gær.