- Auglýsing -
Jón Þór Birgisson, Jónsi í Sigur Rós, er orðinn einhleypur. Nýlega slitu hann og Alex Kendall Somers, sambandi sínu eftir að hafa verið saman í sextán ár.
Jónsi greinir frá sambandsslitunum í viðtali við The Guardian, en þar fjallar hann einnig um tónlistina, ilmgerð, hinseginteknó og innsetningar úr kynlífstækjum. Þrátt fyrir að Sigur Rós hafi verið í pásu um nokkurt skeið hefur Jónsi ekki setið auðum höndum, í október kemur Shiver, önnur sólóplata hans út og einnig vinnur hann að ilmgerð í Fischer ilmhús, sem hann á ásamt systrum sínum þremur.