„Það er stórt skarð sem hefur verið höggvið í líf okkar fjölskyldunnar,“ segir Sigurbjörg Gunnarsdóttir sem síðastliðinn mánudag bar dóttur sína, Reynheiði, til grafar. Hún lést úr krabbameini aðeins 15 mánuðum eftir að faðir hennar, Guðmundur Arnarsson, lést úr sama sjúkdómi. Sigurbjörg hefur því misst bæði eiginmann og dóttur á rúmu ári.
„Bæði maðurinn minn og dóttir hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir krabbameini,“ segir Sigurbjörg. Guðmundur lést 16. maí 2019 þá rétt nýorðinn sextugur að aldri. Aðeins rúmum tveimur mánuðum síðar greindist Reynheiður Þóra með ólæknandi leghálskrabbamein. „Við tóku strangir og erfiðir tímar í geisla- og lyfjameðferðum,“ segir Sigurbjörg sem minnist þeirra beggja með miklum hlýhug.
„Guðmundur fór ungur til sjós og mótaði þar hugmynd karlmannsins. Hann tileinkaði sér hrjúft yfirbragð en undir skelinni var hann skilningsríkur, ósérhlífinn og trúr vinum sínum,“ segir Sigurbjörg er hún minnist eiginmannsins sáluga.
Það var Sigurbjörgu eðlilega gífurlegt áfall þegar Reynheiður greindist með krabbamein svo skömmu eftir andlát Guðmundar. Hún lést 22. ágúst og lætur eftir sig eiginmann og tvö lítil börn, 4 og 7 ára gömul. „Reynheiður var einungis 35 ára er hún lést. Það fór aldrei mikið fyrir Reynheiði, hún hafði hæverskt og ljúft yfirbragð en undir því reyndist nagli sem stóð fast á sínu og vissi hvað hún vildi. Mikill er missir eiginmanns og tveggja ungra barna. Minningin um fallega brosið hennar sem lýsti upp umhverfið hvar sem hún var gleymist seint,“ segir Sigurbjörg.
Sigurbjörg hefur stofnað styrktarreikning til aðstoðar fjölskyldu Reynheiðar dóttur sinnar. Þar gildir að margt smátt gerir eitt stórt og hér getur þú hjálpað fjölskyldunni:
Reikningur: 0545-14-3644
Kennitala: 030963-4909