- Auglýsing -
Sindri Þór Jónsson, eigandi söluturnsins Prinsins, leitar á náðir netverja til að finna innbrotsþjóf sem braust inn í sjoppuna í nótt. Hann birtir myndir af þjófnum úr eftirlitsmyndavélum og biður alla þá sem geti vísað sér á þjófinn um aðstoð.
Þetta gerir Sindri Þór í færslu á Facebook og býður þar fundarlaun til þess sem getur vísað sér á þjófinn. Allir þeir sem geta gefið upplýsingar um mannaferðir í kringum Prinsinn eru hvattir til að láta vita.
Birting myndanna úr eftirlitsmyndakerfi söluturnins er þó líklega á gráu svæði því samkvæmt Persónuvernd er ekki heimilt að birta efni úr slíkum vélum á netinu, þar með talið á samfélagsmiðlum. Til þess að birta slíkar myndir þurfi til samþykki þeirra sem eru á upptökunni og ólíklegt verður að teljast að þjófurinn hafi verið spurður í þessu tilviki. Aftur á móti er heimilt að afhenda lögreglu myndefni úr eftirlitsmyndavélum búi það yfir upplýsingum um refsiverða háttsemi.