Mánudagur 25. nóvember, 2024
-5.1 C
Reykjavik

Jón Víglundsson er látinn: „Hann verður öllum þeim sem honum kynntust eftirminnilegur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jón Víglundsson, bakarameistari og vinsæll ástríðuskákmaður, er látinn. Hann varð 85 ára.  Skák.is greinir frá andláti hans. Jón stofnaði Árbæjarbakarí og rak lengi en hætti því fyrir um tuttugu árum eftir áfall.

Skák birtir minningargrein um Jón og er hann þar sagður hafa verið mjög áberandi í skáksamfélaginu á Íslandi.

„Þau döpru tíðindi bárust fyrir viku síðan að Jón Víglundsson, bakarameistari, siglingakappi, söngvari og ástríðuskákmaður m.m., væri látinn 85 ára að aldri. Hann verður öllum þeim sem honum kynntust eftirminnilegur. Jón hafði teflt sér til ánægju og yndisauka frá unga aldri. Hann var meðal öflugustu skákmanna Taflfélags Reykjavíkur á sjötta áratug síðustu aldar, meðfram stífu námi í bakaraiðn hjá Guðmundi Ágústssyni, bakara og skákmeistara,“ segir í minningargreininni.

Jón varð fyrir alvarlegu áfalli fyrir tveimur áratugum sem skerti skammtímaminni hans. Skák varð honum þó heilsubót.

„Eftir að farsælum starfs- og siglingaferli lauk, var það taflmennskan sem átti hug hans allan. Hann var allra öldunga ötulastur við að tefla sér til afþreyingar og yndis síðustu tvo áratugina, stundum oft í viku. Fór iðulega létt með að taka menn „í bakaríið“ í veltefldum sóknarskákum hvort heldur var í RIDDARANUM; KR; ÁSUM-FEB; KORPÚLFUM; og GALLERÝ SKÁK hér áður fyrr,“ segir í greininni.

Hann var mikill öðlingur við skákborðið. „Heilabrot voru honum holl æfing og sannkölluð heilsubót og gleði. Það háði honum ekki við skákborðið þó minnið brygðist honum stundum varðandi úrslitin. Var allra manna háttvísastur við skákborðið þótt harðsnúinn keppnismaður væri og hefði marga fjöruna sopið bæði til sjós og lands. Bauð gjarnan jafntefli í stað þessa að slá menn niður á tíma þegar staðan bauð upp á það.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -