- Auglýsing -
Það getur verið snúið að auglýsa skáp til sölu á vefsíðunni Bland.is. Þetta fann karlmaður nokkur á eigin skinni nú í vikunni en mynd af auglýsingu hans er nú dreift á samfélagsmiðlum.
Í spegli skápsins má sjá glitta í ljósmyndarann sjálfan sem virðist frekar fáklæddur, í það minnsta er hann ber að ofan. Myndina má sjá betur hér fyrir neðan. Auglýsingin hefur nú verið fjarlægð.