Icelandair Group lauk í dag hlutafjárútboði sínu þar sem markmið fyrirtækisins var að safna 20 milljörðum króna í nýju hlutafé. Samkvæmt heimildum Mannlífs var áhugi fjárfesta á útboðinu umfram væntingar umsjónaraðila, Landsbanka og Íslandsbanka. Allir stærstu lífeyrissjóðir landsins munu hafa sýnt útboðinu áhuga og skráð sig fyrir nýjum hlutum. Þá var áhugi minni fjárfesta og almennings einnig umfram væntingar.
Icelandair mun á morgun tilkynna formlega um niðurstöðu útboðsins og þá umframeftirspurn sem staðfestar heimildir Mannlífs herma að hafi verið. Umsjónaraðilar útboðsins hafa heimild til að stækka útgáfu nýrra hluta um þrjá milljarða króna og búast má fastlega við því að það verði gert.
Michelle Roosevelt Edwards búin að eiga í viðræðum við Icelandair
Greint var frá því í dag hjá mbl.is að Michelle Roosevelt Edwards, athafnakonan sem keypti eignir WOW air úr þrotabúi flugfélagsins hafi skráð sig fyrir sjö milljörðum króna í hlutafjárútboðinu í dag. Sömu heimildir herma að Edwards vonist til að halda á 25 prósenta eignarhlut að loknu útboðinu.
Samkvæmt heimildum Mannlífs hefur Edwards átt í óformlegum viðræðum við stjórnendur Icelandair undanfarnar vikur og rætt mögulega samvinnu á milli Icelandair og félags í hennar eigu sem keypt hafi eignir úr þrotabúi WOW air.
Stóð ekki í skilum um umsamdar greiðslur til þrotabús WOW air
Edwards festi kaup á völdum eignum úr þrotabúi WOW air í júlí 2019 og var síðar nokkuð yfirlýsingaglöð í umfangsmiklu viðtali við ViðskiptaMoggann á þeim tíma. Þrátt fyrir yfirlýsingar um milljarða í rekstrarfé hins nýja félags var kaupunum síðar rift þar sem Edwards gat ekki staðið skil á greiðslum vegna kaupsamnings félags Edwards og þrotabúsins en sú greiðsla átti að skiptast í þrennt og var alls um 180 milljónir króna. Síðar boðaði Edwards til kynningarfundar þar sem samkomulag hafi náðst á milli einkahlutafélags hennar, USAerospace Associates LLC og skiptastjóra þrotabús WOW Air á öllum eignum sem tilheyrðu WOW vörumerkinu.
Í ljósi viðskiptasögu Edwards hér á landi verður að teljast líklegt að umsjónaraðilar útboðsins biðji athafnakonuna um staðfestingu á greiðslugetu áður en úthlutun til hennar getur átt sér stað.