Stefanía Guðjónsdóttir borgari veltir upp þeirri spurningu hvort barátta fyrir nýrri stjórnarskrá gefi fólki rétt á að skemma eigur annarra. Þar vísar hún til veggjakrots víða í miðborginni sem finna megi á veggjum, rafmagnskössum og gagnstéttum.
Þó að Stefanía sé ósátt við veggjakrotið tekur hún það fram að færsla sín í hópi íbúa í miðborginni á Facebook endurspegli ekki skoðun sína á stjórnarskrám. „Það að vilja nýja stjórnarskrá gefur það manni rétt að skemma eigur annarra? Þetta er aldeilis fínt veggjakrotsfordæmi sem nú er sett út um allan bæ. Á veggjum, rafmagnskössum og gangstéttum. Það að nota stensil eða vilja nýja stjórnarskrá gerir þetta ekki að minni skemmdaverkum,“ segir Stefanía.
Guðríður Adda Ragnarsdóttir tekur í sama streng og gagnrýnir veggjakrotið í miðbænum. „Þetta er ekki gott fyrir málstaðinn,“ segir Guðríður Adda. Henni er þar svarað af Steinunni Lilju sem segir þetta breyta málstaðnum ekki neitt.
Guðjón Davíð Pétursson er verulega ósáttur við slagorðakrot stjórnarskrársinna í miðborg Reykjavíkur. „Ég hata þetta og langar helst að grípa einhvern við þennan gjörning. Sérstaklega þegar verið er að krota á persónulegar eigur fólks, hús og húsveggi og annað slíkt,“ segir Guðjón Davíð.
Auglýsingasalinn og baráttukonan Heiða B. Heiðars sér aftur á móti ekkert athugavert við birtingur slagorðanna. „Skemmdarverk að sprauta á gangstétt með stensli? Er ekki í lagi með ykkur?,“ skrifar Heiða.