Stofnandi IHANNA HOME segir ótrúlega dýrmætt að hitta fólkið sem kaupir vörur fyrirtækisins og hlakkar til að hitta sýningargesti um helgina. Vörur fyrirtækisins eru seldar víða um heim.
Hönnunarfyrirtækið IHANNA HOME sýnir úrval af nýjustu vörum sínum um helgina í Laugardagshöll. Meðal þeirra má nefna ullarteppi, heimiliskörfur, barnasængurver, handklæði og servíettur. „Þetta er hágæða hönnunarvörur með grafísku ívafi og sóma sér vel á öllum heimilum og jafnvel vinnustöðum líka,“ segir Ingibjörg Hanna Bjarnadóttir, hönnuður og stofnandi fyrirtækisins. „Auk þeirra ætlum við að sýna tvær nýjustu vörur okkar, veggstjaka og vasa undir heitinu Gravity en þær eru reyndar ekki enn komnar í verslanir. Við sýndum þær á HönnunarMars þar sem þær vöktu mikla athygli og eru margir búnir að spyrja okkur um þær síðan.“
Frábært að hitta fólk
Sýningin um helgina er sú stærsta sinnar tegundar hérlendis sem IHANNA HOME tekur þátt í en fyrirtækið hefur tekið þátt í nokkrum stórum sýningum erlendis undanfarin ár. „Við hlökkum mikið til að hitta gesti sýningarinnar. Það er ótrúlega dýrmætt að hitta fólkið sem kaupir vörur okkar eða hefur áhuga á þeim, hvort sem það eru falleg orð og lærdómsríkar athugasemdir sem við nýtum í seinni tíma framleiðslu okkar.“
Innblástur úr nærumhverfinu
Ingibjörg setti fyrirtækið á fót árið 2008 en fyrsta vara þess var herðatréð Krummi. „Helsti innblástur okkar kemur úr nærumhverfinu og viljum við framleiða vörur sem sameina einfaldleika, gæði og notagildi. Vörurnar okkar eru til sölu í mörgum verslunum hér á landi og einnig víða erlendis. Svo er vefverslun okkar auðvitað opin allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar á www.ihanna.net
Stúdíó Birtíngur í samstarfi við IHANNA HOME