- Auglýsing -
Frakkarnir tveir sem eru taldir bera ábyrgð á COVID-bylgjunni nú þurfa ekki að borga neina sekt. Samkvæmt svörum ríkislögreglustjóra til RÚV. Frakkarnir voru í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.
Lögreglan þurfti að hafa afskipti af þeim þar sem þeir fygldu ekki sóttvarnaráðstöfunum til hins ítrasta. Samt var ekki talin ástæða til að sekta þá.
„Beiting leiðbeininga og tilmæla hafa reynst vel í afskiptum af þeim sem ekki fylgja öllum reglum. Sektum er ekki beitt nema rík þörf sé á,“ segir í svari ríkislögreglustjóra til RÚV.