Aðföng hafa ákveðið að innkalla Himneskt Lífrænt rautt pestó, sem Aðföng flytja inn, eftir að glerbrot fannst í einni krukku. Innköllunin er í í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur.
Krukkurnar sem um ræðir voru seldar í verslunum Bónus og Hagkaupa um allt land og eru neytendur sem keypt hafa vöruna beðnir um að neyta hennar ekki.Viðskiptavinir geta fargað vörunni eða skilað í þeirri verslun sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Innköllunin nær til:
Vörumerki: Himneskt.
Vöruheiti: Lífrænt rautt pestó.
Strikamerki: 5690350050692.
Nettómagn: 130 g.
Best fyrir dagsetningar: Allar í október 2022.
Framleiðandi: La Dispensa di Campagna Srl, Toskana.
Framleiðsluland: Ítalía.
Innflytjandi: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
Dreifing: Verslanir Bónus og Hagkaupa um land allt.