Írskir fjölmiðillinn Sunday Independent fullyrðir að Jón Þröstur Jónsson, sem hvarf á Írlandi í fyrra, hafi verið myrtur af öðrum Íslendingi vegna ósættis um peningamál á pókermóti. Jón Þröstur var staddur í Dublin til að taka þátt í slíku móti.
Vísir greinir frá þessu og vitnar í fyrrnefndan fjölmiðil. Íslenski maðurinn sem liggur undir grun er sagður vera í haldi lögreglunnar á Íslandi. Jón Þröstur hvarf í Dublin á Írlandi í febrúar í fyrra og ekkert hefur spurst til hans síðan.
Fjölskylda hans leitaði í borginni svo vikum skipti en fáar vísbendingar fundust um afdrif hans. Svo virtist sem hann hafi horfið sporlaust í stórborginni. Þangað til núna.
Samkvæmt frétt Sundey Independent var lögreglunni á Íslandi tilkynnt að Jón hafi tekið þátt í ólöglegu pókermót kvöldið áður en hann hvarf. Þar á hann að hafa tapað dágóðri upphæð, ríflega hálfri milljón króna.
Þetta hafi þó ekki verið peningur í hans eigu heldur íslensks afbrotamanns. Sá maður liggur nú undir grun en fjölmiðillinn tekur fram að talið sé að Jón hafi ekki verið myrtir að yfirveguðu ráði heldur af gáleysi. Maðurinn hafi reiðst og því hafi farið svo.