Óstaðfestar grunsemdir eru um að COVID-smit sé í umhverfi landsliðsins í fótbolta. Þetta hefur fotbolti.net eftir Klöru Bjartmars, framkvæmdastjóra KSÍ.
Enginn í liðinu né starfsliðinu er þó enn kominn í sóttkví en málið sé í skoðun. Ísland keppir við eitt besta landslið heims á morgun, Belgíu, í Þjóðadeildinni.
Í frétt fótbolta.net er lýst rafmögnuðu ástandi meðal landsliðsins. „Andrúmsloftið fyrir æfingu íslenska landsliðsins á Laugardalsvelli var sérstakt og Hafliði Breiðfjörð, ljósmyndari Fótbolta.net, skynjaði að eitthvað væri í gangi. Skömmu áður en íslenska liðið mætti á æfinguna í morgun var borð með drykkjum leikmanna tæmt og öllum drykkjum hellt niður,“ segir í fréttinni.