Orðrómur
Svartstakkar innan Þjóðkirkjunnar ráða nú ráðum sínum eftir að séra Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur í Ólafsvík, steig fram í Morgunblaðinu um helgina og lýsti því ófremdarástandi sem ríkir innan æðstu stjórnar Þjóðkirkjunnar þar sem Agnes Sigurðardóttir, biskup fer fyrir Glitstökkum og þykir á stundum vera sem fíll í postulínsverslun í athöfnum sínum.
Margir dást í kyrrþey að kjarki Óskars Inga sem viðbúið er talið að sæti harðri refsingu biskups fyrir kjafthátt sinn gagnvart valdinu á biskupsstofu. Löngu fyrr hafði séra Skírnir Garðarsson stigið fram í Stundinni og lýst ástandinu innan kirkjunnar. Hann var hrakinn á vergang án þess að kollegar hans reyndu að verja hann opinberlega. Séra Geir Waage í Reykholti hefur einnig verið opinskár um það ástand sem leitt hefur til fjöldaflótta frá Þjóðkirkjunni.
Nú hefur kvisast út að kjarni innan Svartstakka undirbúi leynifund á næstunni þar sem skipuleggja eigi andóf gegn Agnesi og meðreiðarfólki hennar með það fyrir augum að uppræta spillingu og glysgirni …