- Auglýsing -
Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Þá hafa þrettán látist hér á landi af völdum kórónuveirunnar frá því að faraldurinn hófst. Þetta er sá þriðji í þriðju bylgju faraldursins.
Aðstandendum er vottuð samúð á vef Landspítalans. Aðeins er dagur liðinn frá því að tólfti Íslendingurinn lést af völdum veirunnar skæðu. Îslendingurinn sem lést í gær vegna Covid-19 var tæplega níræður sjúklingur á Landakoti. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir óttast fleiri dauðsföll á næstunni.