- Auglýsing -
Einn sjúklingur lést á síðasta sólarhring á Landspítala vegna Covid-19. Sá er sautjándi Íslendingurinn sem lést af þessari skæðu veiru.
Aðstandendum er vottuð samúð á vef Landspítalans þar sem tilkynnt var um andlátið. Það er annar dagurinn í röð sem spítalinn tilkynnir um andlát vegna veirunnar.
Tveir létust á Landspítalanum um helgina af völdum COVID. Annar var á áttræðisaldri meðan hinn var níræður. Nú hafa því sjö Íslendingar látist í þriðju bylgju COVID en í heild hafa sextán fallið frá af völdum veirunnar.