Jón Halldór Jónsson, fyrrverandi forstjóri Keflavíkurverktaka, er látinn. Hann lést 3. nóvember, 91 árs að aldri.
Jón nam við Verzlunarskóla Íslands og lærði einnig skipasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík og útskrifaðist þaðan 1951. Sama ár hóf hann störf hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Jón varð framkvæmdastjóra Byggingaverktaka Keflavíkur hf. og síðar forstjóri Keflavíkurverktaka til starfsloka árið 2000. Keflavíkurverktakar var öflugt verktakafyrirtæki sem reisti mannvirki innan og utan Keflavíkurfluvallar og skapaði fjölda starfa fyrir iðnaðarmenn á Suðurnesjum og víðar.
Jón starfaði mikið að félagsmálum og sat í ýmsum stjórnum á ferli sínum. Þá var hann virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og mikill áhugamaður um stangveiði.
Eiginkona Jóns var Soffía Kristín Karlsdóttir, leikkona og revíusöngkona en hún lést nýverið. Þau áttu 10 börn og eru afkomendurnir hjónanna orðnir 82 talsins.