Helga Vala Helgadóttir, alþingismaður Samfylkingar, fagnar því í stöðufærslu á Facebook að fá að ræða sóttvarnir við Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra undir því sem hún kallar „mjög svo sérstöku yfirskrift ráðherra“. „Sóttvarnaraðgerðir með sérstakri áherslu á smitrakningu og einstakan árangur sem náðst hefur í henni hér á landi, munnleg skýrsla heilbrigðisráðherra. – Ein umræða.“ Viðbúið er að Helga Vala setji upp silkihanskana og forðist að styggja ráðherrann með gagnrýni á það sem gerst hefur í sóttvörnum. Þingmaðurinn lét falla þung ummæli í garð Einars Þorsteinssonar, fréttamanns RÚV, sem leyfði sér að spyrja Má Kristjánsson, undirmann forstjóra spítalans, ákveðið út í fordæmalausa innanhússskýrslu hans um smitin á Landakoti sem kostað hafa 13 manns lífið …