- Auglýsing -
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, þykir einstaklega klókur á mörgum sviðum. Undir hans stjórn hefur Morgunblaðið tekið stór skref í fyrirsögnum svo eftir er tekið. Þannig tókst Mogganum að selja gjaldþrot Stuðmanna í metsölu þegar um var að ræða pínulítið rafverktakafyrirtæki en ekki hljómveit allra landsmanna. Nýjasti smellur Davíðs á mbl.is er með þá krefjandi fyrirsögn „Fékk fyrstu fullnæginguna 11 ára“. Þarna er þó auðvitað ekki um að ræða Davíð sjálfan heldur erlenda stjörnu, Halle Berry, sem hefur fært Moggamönnum fleiri smelli en allt annað þann daginn. Menn bíða spenntir eftir næstu uppákomu smellukonunganna …