Hulda Kristín Smáradóttir vekur á Facebook-síðu sinni athygli á gríðarlegum verðmun á sömu gerð af kertum, 8 stk. í pakka. Í Bónus kostar pakkinn: 598 kr. en í Krónunni: 1229 kr.
„Keypti báða þessa kertapakka í dag en það er töluverður verðmunur á þeim þó þeir séu alveg eins. Sama tegund!“
Viðbrögðin við færslunni láta ekki á sér standa.
Ein segir: „Klikkað“
Önnur: „Krónan er alls ekki ódýr verslun.“
Huldu er þakkað fyrir að deila þessu og minna þannig á mikilvægi þess að vera á tánum:
„Já það er ekki hægt að sitja á svona upplýsingum, þetta er til skammar,“ segir hún þá.
Þá kemur jafnframt fram að Hulda Kristín hafi sent Krónunni bréf og óskað eftir útskýringum en að hún hafi ekki fengið svar. Þá segist hún ætla að skila öðrum kertapakkanum ,,… og endurskoða að versla alltaf við Krónuna.“