Brynjar Níelsson alþingismaður er með allra skemmtilegustu mönnum og í uppáhaldi hjá mörgum fjölmiðlum vegna hæfileika sinna til þess að efna til ýfinga. Nýjasta uppákoma Brynjars snýst um að hann hefur í rúman mánuð látið ógert að mæta á nefndarfundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þrátt fyrir að vera á fullum launum sem þingmaður. Hann hefur tilkynnt Bjarna Benediktssyni, formanni sínum, að hann vilji losna og segist ekki vilja eyða tíma sínum í það sem hann kallar leikrit og pólitíska sýndarmennsku þeirra sem þar ráða för. Aðrir telja þó að hann nenni ekki að mæta á fundina og vilji heldur hafa það náðugt. Brynjar er svo á þeirri umdeildu skoðun að Ísland sé að alrangri braut með viðbrögð við Kórónaveirunni og tjónið vegna aðgerða sé meira en yrði ef minna væri að gert. Í Kastljósi RÚV var hann hann spurður um það mál en gat ekki útskýrt í hverju mistökin væru fólgin …