- Auglýsing -
Kvikmyndahúsið Bíó paradís býður nú nýja þjónustu og kemur þannig til móts við kvikmyndaáhugafólk á tímum sem allir eru hvattir til að vera sem mest heima. Heimabíó Paradís er ný streymisveita þar sem hægt er að velja úr kvikmyndaperlum alls staðar að úr heiminum. Dagana 27. nóv – 6. des er alþjóðleg barna kvikmyndahátíð. Hún er haldin í sjöunda sinn og er nú í fyrsta sinn bara á netinu. Tilvalið að slíta börnin frá You Tube og Tik Tok og sameinast á sófanum og horfa á góða kúltur mynd.