Nýjustu fréttir frá Namibíu herma að saksóknari þar í landi telji að Samherji hafi hagnast með mútum sem nemur hátt í 5 milljarða íslenskra króna. Þetta er áfall fyrir Þorstein Má Baldvinsson, forstjóra Samherja, sem trónir á toppi Samherjapíramídans og ber mesta ábyrgð á því sem gerst hefur í myrkviðum Nígeríu. Samherji hefur gert nokkur myndbönd í vörn sinni. Þar hafa verið hjálpsamir verktakarnir Jón Óttar Ólafsson rannsakandi og Þorbjörn Þórðarson, lögfræðingur og fyrrverandi fréttamaður. Reiknað er með útkalli Samherja til að grípa til varna. Einhverjir bíða spenntir eftir nýju myndbandi um Helga Seljan fréttamann eða aðra þá sem hafa sérhæft sig í málefnum Samherja erlendis. Nú þarf allar hendur á dekk …