- Auglýsing -
Fyrir skammri stundu fauk vöruflutningabiðreið útaf á Reykjanesbrautinni. Svo herma heimildir Mannlífs. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar frá lögreglu um málsatvik.
Gífurlegar vindhviður eru á suðvesturhorni landsins og fengust þær upplýsingar frá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu að fjölmargar vöruflutningarbiðreiðar bíði í röðum við Vesturlandsveg í þeirri von að vind lægi svo hægt verði að halda flutningum áfram.
Fréttin verður uppfærð berist frekari fregnir af atvikunu á Reykjanesbrautinni nú síðdegis.