Óli Björn Kárason, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, er einn þeirra sem hlotið hefur takmarkaða upphefð innan eigin flokks og sér jafnvel fram á að verða felldur af Alþingi í næstu kosningum. Það má merkja vaxandi taugaveiklun hans á því að hann boðar andstöðu við nokkur mál ríkisstjórnarinnar og virðist ætla að skapa sér stöðu. Meðal annars er hann andvígur óbreyttu fjölmiðlafrunvarpi Lilju Alfreðsdóttur menntamálaráðherra. Óli Björn er hokinn af reynslu þar sem kemur að rekstri fjölmiðla. Meðal annars rak hann DV með þeim ósköpum að blaðið fór í þrot og Landsbankinn tapaði himinháum upphæðum. Þar sem meirihluti ríkisstjórnarinnar er afar naumur má reikna með þvi að Óli Björn hafi talsverðan hljómgrunn í andófi sínu …