Einn öflugasti álitsgjafi Íslands er Andrés Jónsson, gjarnan titlaður almannatengill. Yfirleitt er það ávísun á skynsemi á dýpt fyrir þáttastjórnendur að fá kappann í spjallþætti sína. Andrés kann svo sannarlega að lesa í samtíma sinn og sér gjarnan það sem öðrum er hulið. Athygli vakti í Silfrinu á RÚV um liðna helgi að Sigmar Vilhjálmsson athafnaskáld var Andrési ofarlega í huga. Í tvígang nefndi hann nafn hans sem dæmi um vísdóm og visku. Óljóst er af samhenginu hvers vegna Andrés nefndi Sigmar en annað tveggja kemur til greina; Andrés uppgötvaði nýverið að Sigmar er svo eldklár að hann verðskuldi að fá kastljós og fullt vægi eða Andrés hefur tekið að sér að koma honum í umræðuna með það fyrir augum að Sigmar fari á þing eða annan áberandi stall samfélagsins og nýti þar visku sína í þágu hnípnar þjóðar í klóm veiru. Menn bíða þess nú spenntir að Sigmar dúkki upp á vettvangi stjórnmálanna …