Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra ratar enn eina ferðina í erlenda fjölmiðla vegna hneykslismáls. Hann var gómaður af lögreglunni á Þorláksmessukvöld á fjölmennu fylleríi og var þar með uppvís af sóttvarnarbroti.
Danski fjölmiðillinn BT fjallar um málið í dag og má segja að áhersla fjölmiðilsins sé á að hávær krafa sé um að Bjarni segi af sér. Fréttin er þó fyrst og fremst frásögn af umfjöllun íslenskra fjölmiðla.
Mikil reiði er meðal almennings vegna málsins. Á hinn boginn hafa sumir spáð að Bjarni segi ekki af sér því hann nýtur enn stuðnings Sjálfstæðismanna. Lágstemmd jólakveðja hans í gær rennur stoðum undir það.
Bjarni birti eftirfarandi jólakveðju í gær um sexleytið á Facebook: „Gleðileg jól kæru vinir nær og fjær“. Viðbrögðin við færslunni eru gífurleg. Nú hafa ríflega 500 manns skrifað athugasemd og nær eingöngu til þess að óska honum til hamingju til baka.
Á annað þúsund manns læka svo. Það er ef til vill lýsandi að einn af fáum sem skýtur á hann er skammaður. Sá deilir frétt um erlendan fjármálaráðherra sem sagði af sér vegna álíka máls. Því er svarað af stuðningsmanni Bjarni: „Ekki við hæfi“.
Gleðileg jól kæru vinir nær og fjær.
Posted by Bjarni Benediktsson on Thursday, December 24, 2020