Þingmenn eru nú einn af öðrum að sperra stél og þenja brjóst vegna yfirvofandi þingkosnniga. Flestir þeirra sem frægir urðu á Klausturbar fyrir orðbragð sem vart er prenthæft ætla að gefa kost á sér. Þeirra á meðal er Ólafur Ísleifsson sem flaug inn á þing fyrir Flokk fólksins og á vængjum Ingu Sæland formanns. Ólafur var rekinn úr flokknum eftir að hafa tekið þátt í drykkjurausinu á Klausturbar þar sem Bára Halldórsdóttir uppljóstrari sat á næsta borði með upptökutæki. Ekki leið langur tími þar til Ólafur var formlega kominn í Miðflokkinn þar sem flestir orðhákarnir eru fyrir á fleti. Ólafur var í ítarlegu viðtali á Harmageddon í vikunni þar sem hann reifaði drauma sína og lýsti yfir framboði í komandi kosningum undir merki Miðflokksins. Hann virtist nokkuð viss um að ná kjöri og að Miðflokkurinn færi í ríkisstjórn og sjálfur fengi hann verðskuldaða upphefð. Allt er þetta þó nokkuð óljóst þar sem mælingar sýna Miðflokkinn í nokkurri lægð …