Guðmundur Felix, sem missti báða handleggi í vinnuslysi fyrir meira en tuttugu árum síðan, hefur nú fengið nýjar hendur eftir að hann gekkst undir aðgerð í Lyon í Frakklandi. Aðgerðin stóð yfir í nærri 15 klukkustundir. Læknar hafa lýst því yfir að batahorfur Guðmundar líti vel út þar sem blóðflæði er út í allar fingur.
Guðmundur er sá fyrsti sem hefur gengist undir ágræðslu á báðum handleggjum fyrir ofan axlir og er þetta sagt stórt skref í læknavísindum. Hann var aðeins 26 ára gamall þegar hann missti báða handleggi í kjölfar vinnuslyss og nú, 23 árum síðar hefur hann fengið nýja handleggi. Guðmundur hefur verið búsettur í Lyon frá árinu 2014.
Í gærkvöldi sendu aðstandendur Guðmundar út tilkynningu þess efnis að hann losni af gjörgæslu í dag. „Hlutirnir eru í góðri þróun. Aðeins smávægilegar flækjur hafa orðið fram til þessa. Búist er við því að hann verði útskrifaður af gjörgæslu á morgun. Vonandi fær hann þá í fyrsta sinn að fara úr sjúkrarúminu eftir aðgerðina. Síðar um daginn, þá vonast Felix til þess að eiga viðtöl í beinni við íslenska fjölmiðla,“ segir í tilkynningunni.